Miðlun góðra starfshátta


inclusion

Samstarfsverkefni opinberra samstarfsaðila sem stuðlar að nánara samstarfi og raunverulegum umbótum á sviði öryggis og heilbrigðis á vinnustöðum.

 

Hvað felst í verkefninu?

Miðlun góðra starfshátta meðal opinberra samstarfsaðila átaksins (Official Campaign Partner Good Practice Exchange) er samstarfsverkefni sem byggir á frumkvæði samstarfsaðilanna sjálfra. Markmiðið er að deila reynslu, læra hvert af öðru og efla öryggi og heilbrigði á vinnustöðum um alla Evrópu. Frá því verkefnið hófst árið 2012 hefur það vaxið og eflst jafnt og þétt.

 

Hlutverk EU-OSHA

EU-OSHA styður verkefnið með það að markmiði að:

  • stuðla að sjálfbærni herferðarinna Heilbrigðir vinnustaðir til lengri tíma,
  • efla langtímasamstarf milli samstarfsaðila,
  • styðja við raunverulegar umbætur á vinnustöðum.

Til að styrkja verkefnið kom EU-OSHA á fót stýrihópi árið 2012. Hópurinn fundar að minnsta kosti tvisvar á ári.

 

Hvernig fer miðlunin fram?

iCO stuðla að

Á þriggja ára fresti

Frá árinu 2013 hafa EU-OSHA og opinberir samstarfsaðilar herferðarinnar sameiginlega staðið að viðburði um miðlun góðra starfshátta á þriggja ára fresti. Þar gefst þátttakendum kostur á að:

  • deila árangursríkum starfsháttum á sviði öryggis og heilbrigðis á vinnustöðum,
  • ræða lykilmælikvarða (KPI) sem styðja við árangursríkar forvarnir,
  • skoða hvaða aðferðir skila árangri í framkvæmd og hvers vegna.

Árlega

Auk þess standa nokkrir af virkustu opinberu samstarfsaðilunum ár hvert fyrir miðlunarfundum eða heimsóknum hjá eigin fyrirtæki eða stofnun og bjóða öðrum samstarfsaðilum að taka þátt og miðla reynslu.

Hvers vegna taka samstarfsaðilar þátt?

Verkefnið endurspeglar metnað og öflugt samstarf opinberra samstarfsaðila víðs vegar um Evrópu og skapar tækifæri til að:

  • eiga opnar umræður og fá nýjar hugmyndir,
  • læra af reynslu annarra fyrirtækja og stofnana,
  • efla samstarf og stuðla að sameiginlegum framförum,
  • sýna í verki skuldbindingu sína við öryggi og heilbrigði á vinnustöðum.

Tilbúin að taka þátt?

Ef þú ert opinber samstarfsaðili herferðarinnar getur þú:

  • tekið þátt í viðburði um miðlun góðra starfshátta,
  • staðið fyrir slíkum viðburði hjá fyrirtækinu eða stofnuninni,
  • deilt góðum starfsháttum og veitt öðrum innblástur.