Evrópuvika um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum


iCO stuðla að

Komdu boðskapnum um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum á framfæri um alla Evrópu!

Evrópuvika um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum, sem haldin er ár hvert í október, er eitt helsta tækifærið fyrir stuðningsaðila og samstarfsaðila til að kynna herferðina Heilbrigðir vinnustaðir.

Víða um Evrópu standa innlendir tengiliðir (National Focal Points) og aðrir samstarfsaðilar herferðarinnar fyrir fjölbreyttum viðburðum, svo sem kvikmyndasýningum, ráðstefnum, sýningum, vefnámskeiðum, keppnum og fræðsluviðburðum.

Vertu samstarfsaðili herferðarinnar, skipuleggðu viðburð og nýttu tilbúið kynningarefni okkar til að dreifa boðskapnum.